Kolmunafarmar til hafnar

Deila:

Börkur NK landaði í Neskaupstað í gærkvöldi með 3.200 tonn af kolmunna sem veiddur var suður og suðaustur af Færeyjum. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Um var að ræða fyrsta túr Herberts Jónssonar í skipstjórastólnum á Berki, en hann hefur starfað á skipum Síldarvinnslunnar frá árinu 1989. Veiðiferðin gekk vel að sögn Herberts og aflinn fékkst í sjö holum, þar sem stysta holið gaf 170 tonn og það stærsta 610 tonn.

Beitir NK er á landleið með 2.600 tonn af kolmunna og er væntanlegur til heimahafnar síðdegis í dag. Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri segir að veiðar hafi gengið vel við línuna á milli Færeyja og Hjaltlandseyja. Aflinn fékkst einnig í sjö holum sem gáfu frá 200 og upp í 500 tonn, en veðrið versnaði undir lok veiðiferðarinnar.

Hafþór Eiríksson rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar segir kolmunnann sem nú berst til vinnslu vera fínt hráefni og að verksmiðjan fari vel af stað. Hann reiknar með að skipin haldi aftur til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu þegar löndun lýkur.

Deila: