Málstofa um fjölbreytileika bleikju

Arnar Pálsson erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands heldur málstofu hjá Hafrannsóknastofnun fimmtudaginn 22. janúar sem ber heitið Áhrif umhverfis og erfða á fjölbreytileika í bleikju. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Málstofan fer fram að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og jafnframt á Teams og er öllum opin.
Í málstofunni verður fjallað um hvernig vistfræðilegar aðstæður geta haft áhrif á sérhæfingu fiska í fæðuöflun og hvernig slíkt birtist meðal annars í breytingum á líkamsgerð og þroska. Sérstök áhersla verður lögð á bleikju, sem sýnir mikinn breytileika í lögun beina og eiginleikum tanna.
Samkvæmt vef Hafrannsóknastofnunar byggir rannsóknin meðal annars á erfðablöndun, eldistilraunum, stofnerfðafræði og rúmfræðilegum formmælingum til að rannsaka uppruna og viðhald þessa fjölbreytileika. Málstofan verður haldin á ensku.
