Ísfisktogarar landa víða eftir stutta túra

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hefur landað í tvígang á Grundarfirði síðustu daga og Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Neskaupstað í gær eftir stutta túra. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Á síðunni er rætt við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra á Jóhönnu Gísladóttur sem segir að skipið hafi landað um 35 tonnum síðastliðinn fimmtudag, þar sem aflinn var að mestu karfi sem fékkst í Kolluálnum. Að lokinni löndun var haldið strax til veiða á ný og skipið landaði aftur á þriðjudaginn, þá með fullfermi. Í þeim túr var aflinn að mestu þorskur og veiðar hófust á Kögurgrunni áður en haldið var í Þverál, á Nýjagrunn og í Víkurálinn. Túrnum var lokið út af Látrabjargi. Jóhanna Gísladóttir hélt aftur til veiða að lokinni löndun á þriðjudaginn og hóf veiðar út af Látrabjargi áður en haldið var í Kolluálinn.
Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Neskaupstað í gær eftir að hafa verið um tvo sólarhringa að veiðum. Afli hvors skips var um 40 tonn. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergey segir að aflinn hafi að mestu verið þorskur og ýsa en einnig hafi lítið magn af karfa og ufsa fylgt með. Veiðar hófust í Hvalbakshallinu, síðan var haldið í Litladýpið í leit að ýsu, aftur í Hvalbakshallið og túrnum lokið á Gerpisflaki.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir að veiðin hafi verið þokkaleg í þá rúmu tvo sólarhringa sem skipið var á miðunum. Áhersla var lögð á ýsuveiðar á Tangaflakinu og Gerpisflakinu, en hann segir að ýsan gefi sig heldur illa á nóttunni þrátt fyrir að veiðarnar hafi gengið þokkalega.


