Raforkuverð setur orkuskipti í uppnám

Deila:

Mikil umræða hefur verið um raforkuflutninga til Vestmannaeyja í tengslum við lagningu nýrra rafstrengja og hækkun á gjaldskrá Landsnets. Á vef Vinnslustöðvarinnar er bent á að málið sé tvíþætt. Annars vegar sé um nauðsynlega endurnýjun rafstrengja að ræða sem bæti afhendingaröryggi raforku til Eyja, en hins vegar hafi ný verðlagning á raforkuflutningi alvarleg áhrif á rekstur fyrirtækisins.

Samkvæmt Vinnslustöðinni hefur flutningskostnaður raforku hækkað svo mikið að nú er orðið mun ódýrara að framleiða gufu með olíu en rafmagni í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins. Þar segir að orkukostnaður með rafmagni nemi nú rúmlega 30 kr/kWh, samanborið við 10–12 kr/kWh með olíu. Afleiðingin sé að flutningskostnaður raforku hafi hækkað um allt að 500%, sem jafngildi 400–500 milljónum króna í auknum árlegum kostnaði.

Í umfjölluninni segir að þessi staða gangi þvert gegn þeirri stefnu sem fyrirtækið hafi fylgt frá árinu 2002 um orkuskipti og notkun grænnar orku. Vinnslustöðin telur að við slíkar forsendur fari orkuskipti ekki lengur saman við ábyrgan rekstur og að núverandi gjaldskrá Landsnets taki ekki mið af vertíðarbundinni og sveigjanlegri orkunotkun fiskimjölsverksmiðja.

Deila: