Frumvarpsdrög harðlega gagnrýnd

Frumvarpsdrög um lagareldi sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sett í samráðsgátt fá harða gagnrýni og virðast hafa sameinað fjölda fólks gegn þeim. Þetta kemur fram í umfjöllun á Vísi, þar sem meðal annars er fjallað um að í fyrra hafi 23 prósent eldislaxa í sjókvíum við Ísland drepist eða verið fargað, sem samsvarar 5,4 milljónum laxa.
„Í fyrra drápust 23 prósent af eldislöxum í sjókvíum við Ísland eða var fargað vegna þess að þeir áttu sér ekki lífs von. Þetta eru 5,4 milljónir laxa sem jafnast á við áttatíufaldan villta laxastofninn,“ er haft eftir Jóni Kaldal talsmanni Íslenska náttúruverndarsjóðsins.
Í fréttinni kemur jafnframt fram að frestur til að skila umsögnum um drögin renni út í dag og að þar séu nú þegar að finna tæplega sex hundruð umsagnir, flestar gagnrýnar. Þá er einnig greint frá því að Bubbi Morthens hafi lýst yfir andstöðu við frumvarpið og látið pistil Árna Péturs Hilmarssonar fylgja með, þar sem Árni segir: „Eldisfyrirtækin eru eins og freki krakkinn á leikskólanum og allar opinberar stofnanir sem hafa með málin að gera, hafa ekki dug til þess að segja nei við neinu sem freki krakkinn vill, samanber ástandið í Seyðisfirði þar sem farið er á svig við lög og reglur án þess að hika til að þjónka norska laxeldiskónga,“ segir meðal annars í pistli Árna.
Þá er í umfjölluninni einnig vísað til harðorðrar gagnrýni í pistli Haraldar Eiríkssonar, þar sem hann segir meðal annars: „Ef (eða þegar öllu heldur) laxeldisfyrirtæki gengur illa um náttúruna og þarf þess vegna að draga saman eða loka framleiðslu á tilteknu svæði vegna álags á lífríkið, þá skal seilst í vasa almennings og bæta fyrirtækinu rekstratapið með greiðslu úr Ríkissjóði!“
