Kvóti á bláuggatúnfiski aukinn

Deila:

Veiðiheimild Íslands á bláuggatúnfiski hefur verið aukin úr 224 tonnum í 254,13 tonn, sem nemur um 13% aukningu. Úthlutunin var ákveðin á 29. ársfundi Atlantshafs túnfiskveiðiráðsins ICCAT. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Bláuggatúnfiskur er einn verðmætasti fiskur hafsins og geta talsverð verðmæti verið fólgin í íslenskum veiðiheimildum. Um veiðar á bláuggatúnfiski gilda hins vegar strangar reglur og er þess nú krafist að skip sem nýta veiðiheimildir Íslands sigli undir íslenskum fána. Íslenskar útgerðir hafa ekki stundað beinar veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski síðan árið 2016, en bláuggatúnfiskur sem veiðist sem meðafli hefur verið skráður.

Ef veiðiheimildir Íslands yrðu nýttar gæfist tækifæri til að sækja um frekari aukningu innan ICCAT og nemur möguleg árleg aukning tæplega 30 tonnum. Innan ráðsins hefur Ísland bent á nauðsyn þess að endurskoða reglur sem banna notkun erlendra leiguskipa, en þær reglur gilda einungis um stofn bláuggatúnfisks. Sú umræða verður endurvakin og óskað eftir vísindalegum rökum fyrir banninu.

Staða Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks er talin sterk og er stjórnun og verndun stofnsins talin eitt besta dæmi um endurheimt fiskistofns á síðustu áratugum.

Deila: