Loðna finnst á stóru svæði

Loðnumæling Hafrannsóknastofnunar sem hófst í upphafi síðustu viku er nú langt komin og einungis er eftir að fara yfir takmarkað svæði út af Vestfjörðum. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir sinna þeim hluta mælingarinnar en mælingum veiðiskipanna Heimaeyjar, Polar Ammassak og Barða er lokið fyrir austan land.
Þótt mælingum sé ekki að fullu lokið greinir Hafrannsóknastofnun frá fyrstu niðurstöðum sem varða ástand loðnunnar og dreifingu hennar. Vísindamenn stofnunarinnar munu á næstu dögum yfirfara gögn, meta stærð veiðistofnsins, óvissu í mælingunum og afrán og í framhaldinu ákvarða ráðgjöf fyrir yfirstandandi vertíð. Ráðgjöfin mun byggja bæði á þessari mælingu sem vegur tvo þriðju hluta og á mælingum á stærð veiðistofnsins haustið 2025 sem vega einn þriðja. Búist er við að ráðgjöfin liggi fyrir í seinni hluta þessarar viku.
Loðnan reyndist dreifð yfir stóran hluta yfirferðasvæðisins og var mesti þéttleikinn í fremsta hluta göngunnar fyrir austan land og úti af Húnaflóa. Langstærsti hluti loðnunnar fyrir norðan og austan land var kynþroska og mun hrygna á næstu vikum. Hrognaprósenta loðnunnar var víðast hvar á bilinu 6–8%.


