Bjartsýni vegna loðnuleitar

Loðnuleit við landið í upphafi síðustu viku hefur skilað jákvæðum niðurstöðum og hefur loðna fundist á stóru hafsvæði. Fimm skip tóku þátt í leitinni og hefur Hafrannsóknastofnun greint frá því að nú standi yfir úrvinnsla gagna sem safnað var í leiðangrinum. Í kjölfarið verður ráðgjöf fyrir komandi vertíð birt og er gert ráð fyrir að hún liggi fyrir á næstu dögum. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Fréttir af leitinni hafa vakið verulega bjartsýni innan greinarinnar. Samhliða þessu er undirbúningur veiða hafinn og er talið að tvö skip haldi til loðnuveiða frá Neskaupstað síðar í kvöld, Barði NK og grænlenska skipið Polar Amaroq.
Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar á þriðjudag í síðustu viku, en aflinn var veiddur í flotvörpu. Í kjölfarið hafa bæði grunnnót og djúpnót verið tekin um borð í skipið til undirbúnings frekari veiða.
Barði NK var eitt þriggja skipa sem tók þátt í loðnuleitinni. Theodór Haraldsson, skipstjóri á Barða, segir leitina hafa gengið vel. „Við vorum að leita frá Kolbeinseyjarhrygg og suður í Reyðarfjarðardýpi. Mest varð vart við fisk austur af landinu,“ segir Theodór. Hann bætir við að skipið sé tilbúið til trollveiða og jafnframt sé verið að undirbúa það fyrir nótaveiðar.
„Þetta er allt virkilega áhugavert og það verður spennandi að fá fréttir af ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar síðar í vikunni,“ segir Theodór.
Svipað er uppi á teningnum hjá Samherja, þar sem loðnuvertíð er í undirbúningi.
„Það á að vísu eftir að koma í ljós hversu mikið magn er þarna á ferðinni en þetta er fyrst og fremst jákvætt. Síðustu tvö árin hafa nú ekki verið beysin hvað loðnuna varðar. Við verðum klárir eftir að nótin verður komin um borð og bíðum líklega eftir því að kvóti verði gefinn út. Hafrannsóknarstofnun lagði til í haust að hámarksaflinn verði rúmlega 43 þúsund tonn en miðað við þessar nýju fréttir erum við vongóðir um að sú tala hækki talsvert. Auðvitað hafði maður lifað í voninni um auknar heimildir og fréttir helgarinnar auka vissulega á bjartsýnina. Það eru miklir hagsmunir í húfi, ekki bara fyrir okkur, heldur þjóðarbúið allt,“ segir Birkir Hreinsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni á vef Samherja.
