Togararnir landa í heimahöfnum

Togarar Síldarvinnslusamstæðunnar hafa landað í sínum heimahöfnum síðustu daga. Jóhanna Gísladóttir GK landaði í Grindavík á laugardag, Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Vestmannaeyjum í gær og Gullver NS er að landa á Seyðisfirði í dag. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar.
Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur segir túrinn hafa gengið mjög vel. „Við lönduðum fullfermi í Grindavík og aflinn var mest karfi og steinbítur. Það var verið eina þrjá daga að veiðum. Við byrjuðum út af Látrabjargi en síðasta daginn var veitt í Jökuldýpinu. Það var mokkarfaveiði í Jökuldýpinu og fengust þar um 30 tonn í þremur mjög stuttum holum. Við erum bara brattir með túrinn,“ segir Einar Ólafur. Jóhanna Gísladóttir hélt á ný til veiða á laugardagskvöld.
Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE komu til hafnar í gær vegna veðurs og lönduðu um 30 tonnum hvor. Arnar Richardsson rekstrarstjóri skipanna segir að veðrið hafi verið slæmt sunnan lands. „Það hefur verið austanátt og virkilegt leiðindaveður. Togararnir komu inn vegna veðursins en afli þeirra var mest ýsa og þorskur. Gert er ráð fyrir að þeir haldi til veiða á ný á fimmtudag,“ segir Arnar.
Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri á Gullver segir aflann í túrnum hafa verið um 90 tonn, mest þorskur og lítið af ýsu. „Við vorum alllengi að finna einhvern fisk í þessum túr. Veitt var alveg frá Skrúðsgrunni og norður á Digranesflak. Mjög tregt var framan af, en aflinn fékkst að mestu á Digranesflakinu,“ segir Hjálmar Ólafur. Gullver mun halda á ný til veiða á fimmtudag.

