Opin málstofa um áhrif friðlýstra hafsvæða

Hafrannsóknastofnun stendur fyrir opinni málstofu nk. fimmtudag kl. 12.30 þar sem fjallað verður um áhrif friðlýstra hafsvæða á virkni vistkerfa. Málstofan fer fram í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 og jafnframt á fjarfundi á Teams. Þetta kemur fram í kynningu Hafrannsóknastofnunar.
Fyrirlesarar eru Joan Fabres og Carl Höjman og yfirskrift er Þekkingarsamantekt um áhrif friðlýstra hafsvæða á virkni vistkerfa. Í erindinu verður fjallað um hvernig friðlýst hafsvæði og aðrar verndarráðstafanir virka í framkvæmd, með hliðsjón af alþjóðlegum skuldbindingum ríkja um að vernda 30% hafsvæða fyrir árið 2030 samkvæmt Kunming–Montreal samkomulaginu um líffræðilega fjölbreytni.
Í erindinu er byggt á þekkingarsamantekt sem SALT hefur unnið í samstarfi við Norsku Hafrannsóknastofnunina, að beiðni Umhverfisstofnunar Noregs. Þar er farið yfir fyrirliggjandi fræðirit um líffræðileg áhrif verndaraðgerða í hafinu og þau sett í samhengi við aðstæður í Norður-Evrópu. Byggt er bæði á alþjóðlegum yfirlitsrannsóknum og frumrannsóknum frá Norður-Atlantshafi, auk rýni á ritrýndum vísindaritum og svokölluðu gráu efni frá hafsvæðum við Noreg.
Joan Fabres er með doktorspróf í sjávarjarðfræði frá Háskólanum í Barcelona og leiðir svið hafstjórnunar hjá SALT, þar sem hann starfar meðal annars að verkefnum á sviði fiskveiðistjórnunar, svæðisstjórnunar, skipulags strandsvæða og stjórnunar friðlýstra hafsvæða. Carl Höjman er með BA-gráðu í umhverfisfræði og meistaragráðu í sjálfbærri viðskiptastjórnun frá Háskólanum í Lundi og leiðir hjá SALT málaflokk um rusl í hafi, auk þess að vera verkefnastjóri stórra verkefna á því sviði.
Málstofan er öllum opin.


