Barði með 880 tonn af loðnu

Deila:

Barði NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 880 tonn af loðnu og hófst vinnsla strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Skipið hafði verið að veiðum austur og norðaustur af Glettinganesinu.

Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra sem segir aflabrögðin hafa verið góð. „Við fengum þennan afla í þremur holum og var dregið í fjóra til sex tíma. Aflinn í holi var frá 180 tonnum og upp í 450 tonn. Veitt var austur og norðaustur af Glettinganesinu í trollhólfi sem þar er,“ segir Þorkell.

Hann segir loðnuna hafa verið nokkuð dreifða á svæðinu. „Loðnan var frekar dreifð en við fundum þó ágætar lóðningar inn á milli. Loðnan er á suðurleið og þéttir sig örugglega vel þegar sunnar kemur og þá verður unnt að veiða hana í nót,“ segir hann.

Þorkell lýsir loðnunni sem mjög fallegri. „Þetta er fallegasta loðna og það var svo sannarlega gott að finna lyktina af henni. Lyktin fannst inn í brú þegar verið var að dæla og þá var maður sæll og glaður. Það eru um 40 stykki í kílóinu, hrognafyllingin er 7–8% og nánast engin áta í henni. Þetta var karl- og kvenloðna til helminga,“ segir hann.

Skipverjar bíða nú spenntir eftir nýrri aflaráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. „Hér um borð eru menn fullir bjartsýni og bíða spenntir eftir ráðgjöfinni frá Hafrannsóknastofnun. Það er full ástæða til að vera bjartsýnn,“ segir Þorkell.

Grænlenska skipið Polar Amaroq var einnig að veiðum á svipuðum slóðum og Barði og var samkvæmt upplýsingum komið með 950 tonn í morgun eftir fjögur hol. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Deila: