Blængur landar 600 tonnum

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til hafnar í Neskaupstað í gær að lokinni 25 daga veiðiferð. Aflinn var um 600 tonn upp úr sjó og er verðmæti hans áætlað um 460 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Mest var af ýsu í aflanum, eða 205 tonn. Þá voru 180 tonn af þorski og 160 tonn af ufsa auk þess sem nokkuð var af grálúðu.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson segir veiðiferðina hafa gengið vel. „Þetta var flottur túr. Það var veitt á Austfjarðamiðum og einnig á miðum suðaustur af landinu. Í reyndinni var í túrnum veitt frá Mýragrunni og norður á Digranesflak. Veður var að mestu gott og veiðin var jöfn. Vel gekk að vinna aflann enda áhöfnin góð og samhent,“ segir Bjarni Ólafur.

Hann segir að ánægjulegt hafi verið að fá ufsa í túrnum. „Við vorum mjög ánægðir með að fá ufsann en hann hefur verið heldur erfiður viðureignar. Ufsinn fékkst frá Berufjarðarál og vestur á Stokksnesgrunn. Miðað við árstíma og lengd veiðiferðar var þetta bara hörkutúr sem menn geta ekki annað en verið ánægðir með,“ segir hann.

Fram kemur að Blængur muni halda til veiða á ný á föstudagskvöld.

Deila: