Tæp 200 þúsund loðnutonn

Deila:

Hafrannsóknastofnun hefur lokið úrvinnslu niðurstaðna loðnumælinga sem fóru fram dagana 19.–25. janúar 2026. Samkvæmt gildandi aflareglu strandríkja leggur stofnunin til að heildarafli loðnu á fiskveiðiárinu 2025/2026 verði ekki meiri en 197.474 tonn. Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum haustmælingar árið 2025 og vetrarmælingarinnar nú í janúar.

Loðnumælingarnar náðu yfir stórt svæði norðvestur, norður, norðaustur og austur af landinu og tóku fimm skip þátt í þeim. Aðstæður til mælinga voru samkvæmt Hafrannsóknastofnun ágætar og hvorki veður né hafís höfðu teljandi áhrif á niðurstöður. Loðnan reyndist dreifð yfir stóran hluta yfirferðarsvæðisins, með mesta þéttleika í fremsta hluta göngunnar fyrir austan land og úti af Húnaflóa.

Heildarstærð veiðistofnsins mældist 710 þúsund tonn. Af því mældist um 54 prósent austan við land, sem talið er að fylgi hefðbundinni hrygningargöngu suður og vestur fyrir land, en um 46 prósent mældist norðvestan við landið.

Óvissa er um hvernig sá hluti loðnunnar sem er norðvestan við land muni haga hrygningargöngu sinni, hvort hann fari fyrir Horn og hrygni vestan við land, hrygni norðan við land eða fari hefðbundna leið austur fyrir landið. Hafrannsóknastofnun hyggst kanna það nánar með leiðangri í febrúar. Á meðan þessi óvissa varir mælir stofnunin með því að veiðar fari fram fyrir Norðurlandi einnig en ekki eingöngu á þeim stofnhluta sem þegar er kominn austur fyrir land.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun.

Deila: