Launalækkanir hjá Arnarlaxi

Deila:

Verkalýðsfélag Vestfirðinga harmar ákvörðun fiskeldisfyrirtækjanna Arnarlax og Arctic Fish um að lækka laun starfsfólks í sjódeildum sínum. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV. Samkvæmt félaginu nær breytingin til rúmlega fimmtíu starfsmanna Arnarlax og á fjórða tug hjá Arctic Fish, en hjá Arnarlaxi gætu launin lækkað um allt að 20%.

Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga segir í samtali við fréttastofu RÚV að þetta séu „verðmæt störf“ og að með launalækkunum séu fyrirtækin að senda þau skilaboð að starfsfólkið sé ekki eins verðmætt og áður. Hann segir óráð að gera ráð fyrir að fólk vilji vinna sömu vinnu á mun lægri launum og bætir við að hljóðið í starfsmönnum sé þungt, þar sem hann upplifi bæði sárindi og vantraust í garð stjórnenda fyrirtækjanna.

Deila: