Loðnuvertíð komin af stað í Neskaupstað

Deila:

Loðnuvertíð er komin af stað í Neskaupstað eftir að Hafrannsóknastofnun lagði til loðnuveiði upp á rúmlega 197 þúsund tonn á vertíðinni. Í kjölfarið hófst undirbúningur af fullum krafti hjá Síldarvinnslunni, þar sem gert er ráð fyrir að öll áhersla verði lögð á vinnslu til manneldis, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Fyrsta loðnan barst til fiskiðjuversins 20. janúar þegar grænlenska skipið Polar Amaroq landaði 340 tonnum. Í kjölfarið kom síðan Barði NK með 880 tonn og þá Polar Amaroq aftur til Neskaupstaðar með 1.200 tonn. Má því segja að loðnuvertíðin sé hafin af fullum krafti í bænum.

Oddur Einarsson yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu segir gert ráð fyrir fullri keyrslu út febrúar og að unnið verði á tvískiptum vöktum allan sólarhringinn. Hann segir starfsfólk hafa verið klárt þegar ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar lá fyrir og að bjartsýni ríki bæði á vinnustaðnum og í samfélaginu.

Deila: