840 tonna hol á kolmunaveiðum

Deila:

Beitir NK kom til Neskaupstaðar á fimmtudagskvöld með um 3.000 tonn af kolmunna. Veitt var í færeyskri lögsögu, fast við bresku línuna, og fékkst aflinn í fimm holum. Að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar var veiðin góð allan túrinn.

Tómas Kárson skipstjóri var ánægður með veiðiferðina og segir aflann hafa fengist í holum sem voru frá 300 tonnum og upp í 840 tonn. „Þetta 840 tonna hol er stærsta kolmunnahol sem ég hef tekið á mínum skipstjóraferli,“ segir Tómas. Hann bætir við að dregið hafi verið frá sex tímum og upp í sextán tíma í hverju holi, en undir lok túrsins hafi dregið úr veiðinni og fiskurinn virst vera að ganga inn í breska lögsögu.

Að lokinni löndun verður loðnunótin tekin um borð í Beiti og verið er að gera skipið klárt fyrir loðnuveiðar. Tómas segir áhöfnina spennta fyrir loðnuvertíðinni og að það liggi vel á mönnum. Þegar veitt er í flotvörpu eru átta um borð, en á nótaveiðum er áhöfnin tólf manna.

Á sama tíma er Börkur NK á kolmunnamiðunum suður af Færeyjum og var kominn með um 1.700 tonn um borð síðast þegar fréttist, samkvæmt upplýsingum á vef Síldarvinnslunnar.

Deila: