Ný lög um leiðarmerki í samráðsgátt

Deila:

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa verið birt drög að nýjum heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga sem eiga að koma í stað laga um vitamál (nr. 132/1999). Frá þessu segir á vef Stjórnarráðsins.

Markmiðið er að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Ísland með notkun vita og annarra leiðarmerkja. Ráðuneytið vann frumvarpsdrögin í nánu samráði við Landhelgisgæslu Íslands, Samgöngustofu og Vegagerðina.

„Með frumvarpinu er ætlunin að einfalda rekstur leiðbeiningakerfa siglinga á Íslandi og skýra skiptingu verkefna milli aðila til að mynda samhljóm við aðra málaflokka samgangna án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi. Jafnframt verði tryggt að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar í málaflokknum.

Í frumvarpinu er kynnt nýtt ákvæði sem fjallar sérstaklega um áhættumat siglinga en kallað hefur verið eftir lagabreytingum til að tryggja lagastoð fyrir slíku áhættumati og skýra betur framkvæmd þess. Í ákvæðinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð með nánari ákvæðum um áhættumat siglinga.

Með því verður tryggt að mannvirki séu ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga, og þær mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um, hafi verið framkvæmt.”

Umsagnarfrestur er til og með 8. febrúar

Deila: