Gæslan bauð fólki um borð í Þór

Deila:

Í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslu Íslands hefur stofnunin boðað röð viðburða þar sem þjóðinni er boðið um borð í tækjakost Gæslunnar. Fyrsti afmælisviðburðurinn fór fram á Þingeyri í lok janúar þegar varðskipið Þór var við bryggju og gestum gefinn kostur á að kynna sér skipið og starfsemi þess. Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

Á föstudegi var leik- og grunnskólanum á Þingeyri boðið um borð þar sem áhöfnin tók á móti nemendum og kennurum, sýndi skipið og fræddi gesti um hlutverk þess. Daginn eftir var almenningi boðið að koma um borð og þáðu tæplega 200 manns boðið og skoðuðu varðskipið í fylgd áhafnarinnar.

Sigmundur F. Þórðarson formaður íþróttafélagsins Höfrungs kom einnig um borð með blómvönd í tilefni aldarafmælis Landhelgisgæslunnar. Höfrungur fagnaði sjálfur 100 ára afmæli fyrir rétt rúmu ári og færði áhöfninni jafnframt könnu sem gerð var í tilefni afmælis félagsins.

Samkvæmt upplýsingum á vef Landhelgisgæslunnar eru fleiri viðburðir af þessu tagi fyrirhugaðir á afmælisárinu og er ætlunin að bjóða þjóðinni um borð í tækjakost stofnunarinnar víðs vegar um landið.

Deila: