Hrefnukvóti í Noregi aukinn

Deila:

Norski sjávarútvegsráðherrann hefur gefið út veiðikvóta fyrir hrefnu fyrir vertíðina í ár og verður heimilt að veiða 1.641 hrefnu. Það er 235 dýrum meira en í fyrra. Kvótinn er ákvarðaður á grundvelli reiknilíkana frá vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins sem miða að sjálfbærri stjórnun hrefnustofnsins.

Þetta kemur fram á vef norskra stjórnvalda þar sem haft er eftir Marianne Sivertsen Næss sjávarútvegsráðherra að norskar hvalveiðar séu sjálfbærar og að hrefnustofninn sé í mjög góðu ástandi. Þar segir einnig að veiðiaðferðir Norðmanna séu skilvirkar og taki mið af dýravelferð. Þá er bent á að mikið afrán hvala í fiski hafi áhrif á vistkerfið og að hvalveiðar geti stuðlað að jafnvægi í hafinu.

Fram kemur að meira en 100 þúsund hrefnur séu í Norður-Atlantshafi og að kvótaaukningin skýrist af ónotuðum kvóta frá fyrri árum sem fluttur hefur verið yfir á þetta ár.

Deila: