84 sagt upp í fiskeldi

Deila:

Alls bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í janúar 2026, þar sem 84 starfsmönnum var sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru á sviði fiskeldis og verður öllum boðið starf að nýju. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda apríl og maí 2026.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.

Deila: