Ný fagbók um plastmengun í sjávarútvegi

Út er komin alþjóðleg fagbók um forvarnir gegn plastmengun frá fiskveiðum og fiskeldi. Bókin heitir Managing Marine Plastic Pollution in Norway, kemur út hjá Routledge og er aðgengileg á netinu. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.
Bókin byggir á niðurstöðum fjögurra ára rannsóknarverkefnisins Shift-Plastics sem Vestlandsforsking leiddi í samstarfi við meðal annars SINTEF og NTNU. Alls koma 18 vísindamenn að verkinu og er Haraldur A. Einarsson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun meðal höfunda. Framlag hans byggir á íslenskri reynslu af flokkun, endurvinnslu og mati á hringrásarmöguleikum veiðarfæra.
Í bókinni eru efnisstraumar plasts í fiskeldi og fiskveiðum kortlagðir og þar kemur fram að norskt fiskeldi standi fyrir mun meiri plastúrgangi en fiskveiðar. Þá er bent á að stór hluti plasts fari enn til brennslu eða urðunar og settar fram tillögur að sjálfbærum hringrásarlausnum sem nýtast geta stjórnvöldum, atvinnulífi og fræðasamfélaginu.
