Vestmannaeyjatogarar landa fullfermi

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE eru báðir að landa í Vestmannaeyjum í dag. Bergey landaði einnig fullfermi í Grindavík á laugardaginn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir veiðarnar hafa gengið vel. „Við lönduðum fullfermi í Grindavík á laugardaginn og var það mest þorskur og ufsi. Aflinn fékkst á Pétursey og Vík og var í reyndinni um mokveiði að ræða. Í túrnum var einungis verið í um tvo daga að veiðum,“ segir Jón. Hann bætir við að nú verði landað um 50 tonnum í Eyjum.

Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey segir skipið hafa verið að veiðum austur af landinu. „Við vorum að veiðum í Berufjarðarálnum, Hvalbakshalli, Papagrunni og á Lónsbugtinni. Túrinn tók tæpa fimm sólarhringa höfn í höfn og fékkst fullfermi sem var til helminga þorskur og ýsa,“ segir Egill Guðni.

Deila: