Brim svipt endurvigtunarleyfi

Deila:

Fiskistofa hefur ákveðið að afturkalla endurvigtunarleyfi Brim hf. í Reykjavík vegna brota á reglum um vigtun og skráningu sjávarafla. Afturköllunin tekur gildi 9. mars 2026 og verður félaginu ekki heimilt að fá slíkt leyfi að nýju fyrr en átta vikum síðar. Þetta kemur fram í ákvörðun Fiskistofu sem verður birt opinberlega á vef stofnunarinnar.

Málið varðar endurvigtun afla úr fiskiskipinu Helgu Maríu RE-3 í fiskvinnslu Brims í Reykjavík þann 16. janúar 2025. Veiðieftirlitsmenn Fiskistofu voru viðstaddir endurvigtunina frá upphafi og komust þá að þeirri niðurstöðu að hugbúnaðarinnsigli vogar sem notuð var við vigtunina væri rofið. Vogin reyndist því ólöggild þrátt fyrir að vera í notkun við endurvigtun. Í kjölfarið var vigtun stöðvuð og allur afli vigtaður að nýju á löggiltri vog.

Brim hf. mótmælti niðurstöðum Fiskistofu og vísaði til þess að vogin hefði bilað. Rafvirki innanhúss hefði gert við hana. Fyrirtækið viðurkenndi þó að vegna mannlegra mistaka hefði láðst að kalla til löggildingaraðila til að löggilda vogina aftur eftir viðgerðina. Þá kom fram í athugasemdum fyrirtækisins að ólöggilda vogin hefði sýnt sömu kílóatölu og önnur löggild vog sem notuð var til samanburðar.

Fiskistofa telur engu að síður að Brim hf. hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að tryggja ekki að vog sem notuð var við endurvigtun uppfyllti skilyrði löggildingar. Í ákvörðuninni kemur fram að þótt ekki hafi verið sýnt fram á að brotið hafi leitt til rangrar aflaskráningar, þá sé með lögum gerð skýr krafa um að endurvigtun fari eingöngu fram á löggiltri vog af löggiltum vigtarmanni. Slík brot grafi undan því trausti sem endurvigtunarleyfishöfum er veitt og ógni almannahagsmunum sem tengjast nýtingu sameiginlegrar auðlindar.

Með hliðsjón af eðli og umfangi brotsins, fyrri framkvæmd í sambærilegum málum og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar taldi Fiskistofa brotið meiri háttar. Því var ákveðið að afturkalla endurvigtunarleyfi Brims hf. í Reykjavík. Ákvörðunin hefur ítrekunaráhrif í tvö ár.

Deila: