Börkur með 3.100 tonn af kolmunna

Börkur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í da g með 3.100 tonn af kolmunna. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar, þar sem rætt er við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra um veiðiferðina.
Hjörvar segir að veitt hafi verið á sömu slóðum og að undanförnu, suðaustur af Færeyjum við bresku lögsögulínuna. Aflinn fékkst í sjö holum og fengust frá 350 til 650 tonn í holi. Hann segir að dregið hafi verið lengi og undir lokin hafi verið tekið eitt hol á sólarhring. “Við munum klára að landa í dag og síðan verður gert klárt fyrir loðnuveiðar og grunnnótin tekin um borð,” segir Hjörvar.
Hann segir jafnframt að spennandi verði að hefja loðnuveiðar og skemmtilegt að fá loksins að veiða í nót á ný. “Við bíðum eftir loðnufréttum frá skipum sem eru út af Hornafirði og á þeim slóðum en veður þar hefur verið óhagstætt. Annars eru menn bjartsýnir og loðnan á hug manna um þessar mundir,” segir Hjörvar.
Í fréttinni er einnig rætt við Hafþór Eiríksson rekstrarstjóra fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar. Hann segir að kolmunninn sé gott hráefni til vinnslu og að vel gangi að vinna hann. Þá kemur fram að verksmiðjan hafi tekið á móti um 14.000 tonnum af kolmunna það sem af er ári. Einnig hafi verið tekið á móti þeirri loðnu sem flokkast hafi frá við manneldisvinnsluna en það sé sáralítið magn.

