Varðskipið Þór til sýnis í Grundarfirði

Deila:

Varðskipið Þór var opið almenningi í Grundarfirði um síðustu helgi í janúar í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslu Íslands. Um fjögur hundruð manns lögðu leið sína um borð í skipið en leik- og grunnskólanum í bænum var boðið að heimsækja Þór á föstudagsmorgni. Á laugardeginum var skipið opið gestum og gangandi.

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðar kom um borð í skipið og óskaði Landhelgisgæslunni til hamingju með tímamótin. Af því tilefni færði hún áhöfninni bók að gjöf með myndum frá Grundarfirði og nærsveitum, sem varðveitt verður á bókasafni varðskipsins.

Landhelgisgæslan þakkar á vef sínum Grundfirðingum kærlega fyrir móttökurnar.

Deila: