Fjölnir aflaði vel í janúar

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK átti góðan janúarmánuð og fór í alls 23 róðra. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar, þar sem rætt er við Kristinn Arnberg Kristinsson skipstjóra um aflabrögðin. Í fréttinni segir að þetta sé mikill fjöldi róðra miðað við síðustu ár og að aflinn hafi alls numið 211 tonnum í mánuðinum.
Á Fjölni eru tvær áhafnir og eru Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjórar. Hvor áhöfn er tvær vikur á sjó og síðan í fríi í tvær vikur.
Kristinn Arnberg segir að veiðin hafi yfirleitt verið mjög góð, þó veður hafi verið leiðinlegt. “Vegna veðursins gátum við lítið róið frá okkar heimahöfn í Grindavík og þurftum að flýja til Þorlákshafnar og síðan Sandgerðis og róa þaðan,” segir hann.
Hann segir einnig að ekki sé oft sem hægt hafi verið að róa jafn mikið í janúar og nú. “Staðreyndin er líka sú að þessi janúarafli er mjög mikill því það er ekki oft sem aflinn hjá Fjölni hefur farið yfir 200 tonn í mánuði,” segir Kristinn Arnberg.
Aflinn var að mestu þorskur og segir Kristinn að hann hafi verið stór og góður. Þá hafi einnig fengist talsvert af ýsu fyrr í mánuðinum. “Menn eru mjög ánægðir með þennan janúarmánuð og við strákarnir um borð erum hressir með útkomuna,” segir Kristinn Arnberg.

