Höfrungar í Hafnarfjarðarhöfn

Gestir og gangandi í Hafnarfirði fengu óvænta heimsókn í vikunni þegar hópur höfrunga af tegundinni Leucopleurus acutus hélt sig í höfninni. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar, þar sem segir að tegundin sé ýmist nefnd leifturhnýðir eða leiftur á íslensku.
Leiftur er smávaxin höfrungategund sem lifir við strendur Íslands. Þeir verða yfirleitt ekki meira en þrír metrar að lengd og um 200 kíló að þyngd, með stutt trýni og stórt aftursveigt horn. Leiftur, ásamt hnýðingi, er meðal algengustu höfrungategunda við landið og í síðustu hvalatalningu var stofninn metinn rúmlega 130.000 dýr.
Í frétt Hafró kemur fram að fremur sjaldgæft sé að leiftur haldi sig við hafnir landsins í fæðisleit. Vitnað er í upplýsingar af vef Náttúrufræðistofnunar þar sem segir: „Leiftur heldur sig aðallega á úthafinu og er algengasta höfrungategundin við Færeyjar.“
Myndir sem birtar eru með fréttinni voru teknar af Melanie Stock doktorsnema hjá Hafrannsóknastofnun.

