Vísir vann 16.700 tonn af bolfiski

Vísir í Grindavík starfrækir tvær vinnslustöðvar á staðnum, frystihús og salthús. Á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að alls hafi verið unnin rúmlega 16.700 tonn af bolfiski í vinnslustöðvunum tveimur á árinu 2025.
Í frystihúsinu voru unnin rúmlega 4.700 tonn af þorski, rúmlega 3.100 tonn af ýsu og tæplega 240 tonn af ufsa. Í salthúsinu voru unnin tæplega 5.700 tonn af þorski, rúmlega 670 tonn af ufsa, tæplega 1.800 tonn af löngu og rúmlega 500 tonn af keilu.
Hráefnið kom að mestu frá eigin skipum félagsins, togaranum Jóhönnu Gísladóttur GK, línuskipunum Páli Jónssyni GK og Sighvati GK og krókaaflamarksbátnum Fjölni GK. Þá var einnig tekið á móti afla frá fleiri skipum innan Síldarvinnslusamstæðunnar. Auk þess voru tæplega 562 tonn keypt á markaði til vinnslu á árinu.
Sigurður Jónsson rekstrarstjóri salthúss Vísis segir að árið 2025 hafi verið gott hvað vinnsluna varðar og að um 60 manns starfi í salthúsinu. Hann segir einnig að þrátt fyrir eldgos á árinu hafi vinnufall aðeins orðið í um tvo daga. Ómar Enoksson rekstrarstjóri frystihússins segir að í frystihúsinu starfi um 70 manns og að starfsemin hafi gengið vel, enda hafi náttúruhamfarir haft afar lítil áhrif á vinnsluna.
