Bullandi vertíð á línuskipunum

Deila:

Vísisskipin hafa landað góðum afla í heimahöfn í Grindavík að undanförnu. Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í gær og línuskipið Páll Jónsson GK landaði þá 120 tonnum. Í dag er línuskipið Sighvatur GK að landa tæpum 130 tonnum. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur segir aflann hafa verið að mestu karfi og þorskur og að veður hafi verið afbragðsgott miðað við árstíma. Benedikt Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni segir vertíðina vera komin vel af stað og að aflinn hafi fengist í fimm lögnum í Kolluálnum. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri á Sighvati segir skipið hafa fyllst í tæpum fimm lögnum í Jökuldýpisbotni og að aflinn hafi verið langmest þorskur.

Deila: