Samfelld loðnuvinnsla fyrir austan

Loðnuveiðar hafa gengið vel og er samfelld vinnsla í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Nokkur skip hafa landað eða bíða löndunar þar um helgina. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Barði NK landaði 800 tonnum á laugardagsmorgun. Þorkell Pétursson skipstjóri segir loðnuna hafa verið að skríða upp á grunnið suðvestan við Hornafjörð og að aflinn hafi fengist í tveimur köstum. Beitir NK kom með 900 tonn á sunnudagsmorgun og segir Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri að aflinn hafi fengist í þremur köstum í Mýrabugtinni og að allt hafi gengið ljómandi vel í hans fyrsta nótaveiðitúr sem skipstjóri.
Grænlenska skipið Polar Amaroq kom með 1.000 tonn og segir Geir Zoëga skipstjóri að veiðarnar hafi verið mjög góðar á Mýragrunni þar sem mikið líf sé á miðunum. Börkur NK kom til Neskaupstaðar fyrir hádegið í dag með 1.250 tonn og segir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri að loðnan virðist vera að ganga upp á grunnið og að framhaldið líti vel út.
Allt bendir til brælu á loðnumiðunum á morgun og á miðvikudaginn en síðan er spáð betra veðri.
