Alþjóðadadgur kvenna í vísindum

Hafrannsóknastofnun fagnar í dag, 11. febrúar, alþjóðlegum degi kvenna í vísindum. Nú eru liðin 31 ár frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Beijing þar sem gefin voru fyrirheit um bættan hlut kvenna um allan heim og samþykkt framkvæmdaáætlun sem hafði það markmið að skila árangri í jafnréttismálum. Alþjóðlegur dagur kvenna í vísindum er skilgetið afkvæmi þeirrar ráðstefnu og aðgerðaáætlunarinnar sem fylgdi í kjölfarið. Frá þessu er sagt á vef stofnunarinnar.
Hér á landi njóta konur meira jafnréttis þegar kemur að þátttöku í vísindastörfum og tækifærum til náms en víða annars staðar í heiminum. Þó er ekki langt síðan konur fengu takmarkað brautargengi til náms og starfa í vísindum á Íslandi, staða sem hefur breyst hægt og rólega á undanförnum áratugum.
Þróunin sést vel í starfsmannahaldi Hafrannsóknastofnunar. Árið 1975 voru konur aðeins 9% starfsmanna stofnunarinnar, 14 af alls 125. Þá heyrðist stundum sagt að það þætti ekki vera kvenmannsverk að fara í rannsóknarferðir á sjó, þótt fáar en öflugar vísindakonur tækju þátt í slíkum ferðum. Ef horft var fram hjá áhöfnum var hlutfall kvenna 19%. Árið 2000 voru starfsmenn orðnir 194 talsins og konur 53 eða 27% heildarfjöldans, en 34% ef áhafnir voru undanskildar. Enn voru konur þá aðeins í undantekningartilvikum hluti af áhöfnum rannsóknaskipa. Nú árið 2026 eru konur 36% starfsmanna alls og 45% ef horft er til starfsmanna utan áhafna. Hlutfall kvenna meðal vísindafólks hefur því hækkað jafnt og þétt, þótt karlar séu enn ívið fleiri.
Þrátt fyrir jákvæða þróun hér á landi er staða stúlkna og kvenna víða í heiminum enn erfið þegar kemur að námi og þátttöku í vísindastarfi. Með deginum vill Hafrannsóknastofnun hvetja stúlkur og konur til að sýna vísindum áhuga og taka virkan þátt í vísindastörfum.
Jafnrétti kynjanna í vísindum skiptir sköpum fyrir betri framtíð samfélaga. Til að minnka kynjabilið þarf að brjóta niður staðalímyndir, efla fyrirmyndir sem veita stúlkum innblástur, styðja framfarir kvenna með markvissum áætlunum og skapa umhverfi án aðgreiningar með stefnu og aðgerðum sem stuðla að þátttöku, fjölbreytileika og jafnrétti.



