Veðurtakmarkanir teknar upp hjá Faxaflóahöfnum

Faxaflóahafnir hafa sett formlegar takmarkanir á umferð skipa vegna veður- og vindskilyrða á hafnarsvæðum sínum á Akranesi, Grundartanga og í Reykjavík. Markmiðið er að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða. Um er að ræða í fyrsta sinn sem höfn á Íslandi gefur opinberlega út slíkar takmarkanir.
Takmarkanirnar byggjast á ítarlegri greiningu á vindgögnum, hermirannsóknum og þekkingu og reynslu hafnsögumanna Faxaflóahafna á viðkomandi hafnarsvæðum.
Ákvörðunin á rætur að rekja til alvarlegs atviks á Viðeyjarsundi í maí 2023 þegar skemmtiferðaskipið Norwegian Prima var nær strandað í suðvestan hvassviðri. Í kjölfarið var ákveðið að ráðast í gerð skýrra viðmiða sem styðja gætu hafnsögumenn og skipstjóra við ákvarðanatöku í krefjandi aðstæðum.
Leitað var til Marine Training Center Hamburg í Þýskalandi til að leiða vinnuna við gerð skýrslu sem nýtt yrði við útgáfu veðurtakmarkana. Fyrirtækið hefur reynslu af sambærilegri vinnu fyrir hafnir, meðal annars höfnina í Hamborg. Hafnir Faxaflóahafna voru settar upp í siglingahermum fyrirtækisins þar sem hægt var að herma sambærileg skip og aðstæður við hafnaraðstöðu Faxaflóahafna. Við vinnuna var stuðst við gögn úr veðurstöðvum hafnanna fjögur ár aftur í tímann.
Alls voru framkvæmdar 77 hermanir. Hafnsögumenn Faxaflóahafna, ásamt yfirhafnsögumanni, stýrðu skipum í herminum og gáfu dráttarbátum fyrirmæli um aðstoð.
Takmarkanirnar voru samþykktar á fundi hafnarstjórnar 22. ágúst og gefnar út síðastliðið haust. Með þeim er stefnt að auknu öryggi skipa og að fækka alvarlegum atvikum sem kunna að verða vegna krefjandi veðuraðstæðna.


