Nýr skipulagsfulltrúi til Faxaflóahafna

Þórður Már Sigfússon hefur verið ráðinn skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna og hefur þegar hafið störf. Þórður kemur til starfa frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar þar sem hann starfaði síðustu fjögur ár sem verkefnistjóri deiliskipulagsáætlana. Þar áður var hann skipulagsfulltrúi í samlagi fimm sveitarfélaga á Vestfjörðum; Dalabyggðar, Strandabyggðar, Reykhólahrepps, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps. Þetta kemur fram á vef Faxaflóahafna.
„Ég hef tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á mínum ferli í skipulagsmálum. Í starfi mínu hjá Reykjavíkurborg sá ég frá fyrstu hendi hversu lykilhlutverki eining á borð við Faxaflóahafnir gegnir, ekki aðeins í daglegri starfsemi borgarinnar heldur einnig með tilliti til framtíðarþróunar hennar. Hlutverk hafnanna nær langt út fyrir borgarmörkin, enda er starfsemi Faxaflóahafna á landsbyggðinni jafnframt mikilvægur þáttur í byggðaþróun, atvinnulífi og samspili skipulags, samgangna og hafnarstarfsemi,“ segir Þórður Már Sigfússon.
Þórður er með BS-gráðu í landfræði og meistaragráðu í skipulagsfræði.
Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum sínum í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi. Félagið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum. Rúmlega 80 manns starfa hjá fyrirtækinu sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.



