Fiskeldisgjaldið hærra en launaliðurinn

Deila:

Eldisfyrirtæki í sjókvíaeldi greiddu samtals um 2,4 milljarða króna í fiskeldisgjald og umhverfisgjald á síðasta ári. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Arctic Fish þar sem farið er yfir framleiðslutölur og gjaldtöku vegna ársins 2025.

Þar kemur fram að öll fyrirtæki sem eru í eldi á frjóum laxi hafi nú skilað framleiðslutölum fyrir árið 2025. Framleiðslan í fyrra hafi verið um 46 þúsund tonn og megi gera ráð fyrir að útflutningsverðmæti hafi numið um 50 milljörðum króna.

Í færslunni segir að íslensk eldisfyrirtæki greiði 4,3% af viðmiðunarverði í eldisgjald auk þess að greiða í umhverfissjóð fyrir hvert tonn leyfis. Í fyrra hafi gjaldið í fiskeldissjóð verið 45 krónur á hvert kíló. „Það þýðir að fiskeldisgjaldið var ríflega 2 milljarðar en umhverfisgjaldið er áætlað um 393 milljónir króna,“ segir í færslunni.

Þá er greint frá því að Kaldvík hafi greitt mest í gjöld, um 950 milljónir króna, Arctic Fish 770 milljónir, Arnarlax 660 milljónir og Háafell ríflega 100 milljónir króna. Eldisgjöld á Vestfjörðum hafi numið 1,5 milljörðum króna og 950 milljónum á Austfjörðum.

Samkvæmt færslunni greiddu fyrirtækin því alls um 54 krónur á hvert framleitt kíló í sértæka skatta. „Það eru lang hæstu sértæku eldisskattar í heimi,“ segir þar og bætt við að greinin hafi lagt mikla áherslu á að gjöldin taki mið af afkomu í nýju lagafrumvarpi. Fullyrt er að samanlagt tap greinarinnar á síðasta ári hafi ekki verið undir 10 milljörðum króna vegna lágs verðs á mörkuðum.

Að lokum er bent á að Arctic Fish hafi í janúar greitt meira í fiskeldisgjald en sem nam útborguðum launum til starfsmanna fyrirtækisins.

Deila: