Veiddi loðnun fyrir markaði í Japan

Beitir NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í morgun með 850 tonn af loðnu. Að sögn Ólafs Gunnars Guðnasonar skipstjóra er um hina fallegustu loðnu að ræða og er hrognafyllingin orðin 17%.
Verið er að vinna úr Barða NK í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og mun löndun úr Beiti NK væntanlega hefjast í kvöld.
„Við fengum aflann í tveimur köstum út af Hjörleifshöfða í gær. Það voru 450 tonn í fyrra kastinu og um 400 í því síðara. Hlutfall hrygnu var 60% í fyrra kastinu en 40% í því síðara. Hér er um að ræða hrygnu sem fer í framleiðslu á Japan,“ segir Ólafur Gunnar.
Hann segir loðnuflotann hafa verið að veiðum á talsverðu svæði, allt austur undir Alviðru. „Á leiðinni austur urðum við varir við töluvert af loðnu, til dæmis var verulegt að sjá við Ingólfshöfðann. Við komum til hafnar í morgun og nú munu Hampiðjumenn lagfæra nótina en hún rifnaði dálítið í gær. Ég held að mönnum lítist ágætlega á framhald þessarar vertíðar,“ segir Ólafur Gunnar.
