Eyjaskip með fullfermi

Deila:

Eyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn um helgina að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.. Vestmannaey landaði á laugardagsmorgun og Bergey í gær.

Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir veiðiferðina hafa gengið afar vel. „Þetta gekk afar vel. Aflinn var mest fínasta ýsa og síðan var blanda af öðru með. Eitt hol var tekið á Pétursey og Vík og síðan var verið í hörkuveiði á Ingólfshöfðanum. Túrinn tók tvo og hálfan sólarhring höfn í höfn en það var einungis verið að veiðum í einn og hálfan. Þarna var fiskurinn í loðnu og það var mikið af loðnu að sjá. Nú styttist í virkilegt vertíðarfjör,“ segir Birgir Þór.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey var einnig ánægður með aflabrögðin. „Við fengum aflann á Ingólfshöfðanum í fínasta veðri. Þetta var mest þorskur og ýsa en síðan fylgdu fleiri tegundir með í nokkrum mæli. Það var bara fínasti túr í alla staði,“ segir Jón.

Vestmannaey hélt til veiða strax að lokinni löndun á laugardag en Bergey mun halda til veiða á miðvikudagskvöld.

Deila: