Fengu hús að gjöf frá Oddi

Útgerðarfélagið Oddi hefur afhent Björgunarsveitinni Blakk á Patreksfirði um 300 fermetra húsnæði sem er sambyggt núverandi aðstöðu sveitarinnar. Frá þessu greinir Slysavarnafélagið Landsbjörg á Facebook.
Oddi hefur um árabil átt hluta þess húsnæðis sem einnig hýsir björgunarsveitina en afhendingin fór fram 11. febrúar. Skjöldur Pálmason framkvæmdastjóri Odda afhenti sveitinni húsnæðið formlega.
Fram kemur að gjöfin breyti aðstöðu sveitarinnar mjög til hins betra enda hafi starf hennar verið í miklum blóma og þörf á stærra húsnæði.
Við afhendinguna sagði Skjöldur að markmið Odda með gjöfinni væri að styðja við það mikilvæga og ómetanlega starf sem björgunarsveitin sinnir í samfélaginu. „Hjá Odda er litið á það sem samfélagslega skyldu fyrirtækisins að leggja sitt af mörkum á meðan burðir leyfa“.
Oddi hefur áður styrkt björgunarstarf á sunnanverðum Vestfjörðum og meðal annars lagt söfnun fyrir nýju björgunarskipi myndarlega lið.
Félagar í Blakki eru að sögn himinlifandi með nýju aðstöðuna sem muni skipta sköpum fyrir áframhaldandi starf sveitarinnar og þakklátir fyrir stuðninginn.


