Fylgjast með ferðum fiska á friðuðum svæðum

Deila:

Hafrannsóknastofnun hefur hafið rannsóknir á áhrifum friðunar á aðgengi og veiðanleika nytjafiska. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Verkefnið er styrkt af verkefnissjóði sjávarútvegsins og er markmiðið að kanna hvernig fiskar nýta friðuð svæði og hvaða áhrif slíkar lokanir hafa á afla. Verkefnið fellur jafnframt að skuldbindingu Íslands um að vernda 30% hafsvæðisins fyrir árið 2030.

Rannsóknin hófst haustið 2025 með leiðöngrum þar sem fiskar voru merktir innan og í nágrenni við friðuð svæði. Notuð eru rafeindamerki sem skrá þrýsting, það er dýpi, og hitastig á tíu mínútna fresti. Þegar fiskar endurheimtast og merkjum hefur verið skilað til stofnunarinnar er hægt að áætla ferðir þeirra með því að tengja gögn úr merkjunum við umhverfismælingar og kortlagningu hafsbotns.

Farið var í tvo leiðangra. Í þeim fyrri, sem farinn var með Páli Jónssyni, voru 218 fiskar merktir við suðausturland. Í þeim síðari, um borð í Árna Friðrikssyni vestan við landið, voru 76 fiskar merktir. Alls voru merktar 11 tegundir: þorskur, ýsa, ufsi, keila, steinbítur, hlýri, skötuselur, skarkoli, skata, lúða og áll.

Tvö merki hafa þegar verið endurheimt. Annað þeirra var úr ýsu og er það í fyrsta sinn sem rafeindamerkt ýsa hefur verið endurheimt við Ísland. Hún var merkt á Mýragrunni og ferðaðist að minnsta kosti 26 kílómetra á 75 dögum. Hitt merkið var úr hlýra sem merktur var vestan við land og ferðaðist að minnsta kosti sjö kílómetra á 60 dögum.

Deila: