Nýtt flutningaskip sjósett fyrir Smyril Line

Fyrr í þessari viku var sjósett fyrra af tveimur nýjum flutningaskipum sem verið er að smíða í Kína fyrir Smyril Line. Þetta kemur fram í frétt á vef Fiskifrétta. Sjósetningin fór fram í Raffles skipasmíðastöðinni og tókst vel. Skipið mun bætast í flotann síðar á þessu ári en seinna systurskipið verður sjósett eftir nokkra mánuði.
Skipin eru smíðuð hjá CIMC Raffles og eru 190 metra löng. Þau eru hönnuð til flutninga á Norður-Atlantshafi allt árið um kring og munu sigla milli Evrópu, Færeyja og Íslands. Við hönnun þeirra var lögð sérstök áhersla á góðan aðbúnað áhafnar og umhverfissjónarmið.
Samkvæmt fréttinni uppfylla skipin ströngustu kröfur um kolefnislosun og verður losun þeirra umtalsvert lægri á hvert tonn en hjá eldri skipum í flota Smyril Line. Þau verða búin rafgeymum sem hægt verður að hlaða í höfnum þannig að viðkoma geti verið án losunar. Einnig verða þau útbúin til brennslu á metanóli sem félagið telur framtíðarorkugjafa.

