Engin loðnuganga tili vesturs

Deila:

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var síðustu vikuna við loðnurannsóknir út af Norðvesturlandi en þeim er nú lokið. Meginmarkmið leiðangursins var að kanna hrygningargöngur og magn loðnu á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Yfirferðin hófst vestur af Dohrnbanka og fylgdi kantinum úti fyrir Vestfjarðamiðum allt norður að Skagagrunni. Jafnframt safnaði rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir bergmálsgögnum sem skoðuð voru með tilliti til loðnu í sjórannsóknaleiðangri kringum landið í febrúar.

Samkvæmt niðurstöðum sást nær ekkert af loðnu norður af landinu. Vart varð við lítils háttar magn af hrygningarloðnu á Barðagrunni og einnig ókynþroska loðnu við kantinn utar á Vestfjarðamiðum.

Miðað við þessar niðurstöður er dregin sú ályktun að meginhluti kynþroska loðnunnar sem mældist norðvestur af landinu í janúar, alls 328 þúsund tonn, hafi gengið þaðan til austurs, réttsælis með landinu, og muni skila sér til hrygningar suður og vestur af landinu.

Fram kemur að Hafrannsóknastofnun ráðgeri ekki frekari mælingar á loðnustofninum þennan veturinn.

Deila: