Fimm prósent samdráttur í janúarafla

Deila:

Landaður afli í janúar 2026 var tæp 75 þúsund tonn sem er 5% minni afli en í janúar árið á undan. Botnfiskafli dróst saman um 11% á milli ára, uppsjávarafli jókst um 1% og flatfiskafli dróst saman um 27%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Á tímabilinu febrúar 2025 til janúar 2026 var landað samtals 1.028 þúsund tonnum sem er 4% meiri afli en á tímabilinu febrúar 2024 til janúar 2025. Uppsjávarafli jókst um 11% miðað við fyrra tímabilið á meðan flatfiskafli dróst saman um 17% og botnfiskafli dróst saman um 2%.

Deila: