Vertíðin gæti vart verið betri

Loðnuvertíðin heldur áfram að gefa vel af sér og Börkur NK kom til Neskaupstaðar eftir hádegi í gær með 2.100 tonn af loðnu. Vinnsla hófst þegar úr skipinu og er gert ráð fyrir að hún taki um 40 tíma.
Aflinn fékkst í þremur köstum um tíu mílur norðvestur af Heimaey. Í fyrsta kastinu fengust 120 tonn en í hinum tveimur um 1.000 tonn í hvoru kasti. Veitt var á þriðjudag, fyrsta kastið var sett nokkru fyrir hádegi og veiðum lokið um hálf sjö um kvöldið.
„Þessi veiðiferð gekk vel í alla staði en við fengum reyndar heldur meiri afla en stefnt var að. Þetta gekk semsagt afar vel og getur reyndar ekki verið mikið betra. Það er rosalega gaman að fá að veiða í nót og þessi veiðidagur var einkar skemmtilegur. Torfurnar sem við köstuðum á voru alveg í yfirborðinu og við sáum þær greinilega. Maður gleymir ekki svona degi,“ segir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri.
Fleiri bátar voru á sömu slóðum og fengu einnig góðan afla. Loðnan sem fékkst er sögð vera í mjög góðum gæðum, um 60% aflans er hrygna og hrognaprósentan 19–20%. Japansfrystingu fer nú senn að ljúka og tekur þá við hrognavinnsla.
„Sannleikurinn er sá að þessi loðnuvertíð getur ekki verið mikið betri. Þetta er hreint út sagt alveg glimrandi,“ segir Hjörvar.
Myndin er af vef Síldarvinnslunnar og er tekin af Birni Steinbekk.

