LS segir misskilnings gæta vegna grásleppukvóta

Á vef Landssambands smábáteigenda kemur fram að misskilningur sé kominn á flug um að Fiskistofa hafi úrskurðað að ekki sé hægt að fella niður grásleppukvóta án bóta.
Samkvæmt fréttinni má rekja þennan misskilning til ræðu Bergþórs Ólasonar þingmanns Miðflokksins á 73. fundi 157. löggjafarþings þann 18. febrúar 2026. Í ræðu sinni vitnaði hann til umsagnar Fiskistofu frá 28. maí 2025 um fyrra frumvarp og sagði meðal annars: „Fiskistofa fær ekki séð að hægt sé að fella niður hlutdeild skipa og færa réttindi til að stunda grásleppuveiðar yfir á önnur skip án þess að bætur komi fyrir. Þótt skýrt komi fram í 3. málslið 1. greinar laga um stjórn fiskveiða, að úthlutun veiðiheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkræfanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum, þá njóti veiðiheimildir vissrar verndar sem atvinnuréttindi. Að mati Fiskistofu verða þau réttindi ekki færð til annarra aðila bótalaust.“
Í frétt Landssambands smábáteigenda er hins vegar tekið fram að þeir vankantar á fyrra frumvarpi sem Fiskistofa gerði athugasemdir við hafi verið lagfærðir í því frumvarpi sem nú liggi fyrir Alþingi. Af þeim sökum hafi engin ástæða verið til að ræða skaðabótaskyldu í umsögn Fiskistofu um fyrirliggjandi frumvarp, þar sem með niðurfellingu á hlutdeild skipa séu réttindi til að stunda grásleppuveiðar ekki færð yfir á önnur skip.

