Alþjóðlegur fundur um fiskveiðistjórnun í Hörpu

Deila:

Alþjóðlegur sérfræðingafundur um fiskveiðistjórnun hófst í Hörpu í morgun og stendur dagana 23.-27. febrúar. Þar koma saman nærri 150 sérfræðingar frá rúmlega 60 ríkjum auk fulltrúa alþjóðastofnana og annarra hagsmunaaðila. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Fundurinn er formlegur vettvangur á vegum Sameinuðu þjóðanna og er hluti af starfi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun, FAO COFI Sub-Committee on Fisheries Management. Ísland gegnir nú formennsku í undirnefndinni til tveggja ára en hún er nýstofnaður vettvangur sem ætlað er að verða leiðandi alþjóðlegur umræðuvettvangur um tæknileg og stefnumótandi málefni fiskveiðistjórnunar.

„Formennska Íslands felur í sér einstakt tækifæri til að leggja af mörkum til mótunar alþjóðlegrar stefnu á þessu mikilvæga sviði og til að efla samstarf við önnur ríki sem leggja áherslu á ábyrga og sjálfbæra nýtingu hafsins,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í ávarpi sínu. „Þá gefst einnig mikilvægt tækifæri á fundinum að kynna íslenska nálgun að fiskveiðistjórnun, sem byggir á vísindalegri ráðgjöf, skýru regluverki og langtímasýn um sjálfbærni. Fundurinn styrkir einnig stöðu Íslands sem virks og áhrifamikils þátttakanda í alþjóðlegri stefnumótun í málefnum hafsins,“ bætti hún við.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn við upphaf hans. „Sem fyrr leggur Ísland áherslu á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs, sérstaklega í gegnum Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. FAO hefur mótað alþjóðleg viðmið um ábyrgar fiskveiðar og gegnir lykilhlutverki í gagnaöflun, samhæfingu og baráttu gegn ólöglegum veiðum,“ segir hún. „Ísland mun áfram taka virkan þátt í alþjóðlegri stefnumótun um málefni hafsins, m.a. innan ramma hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna.“

Hefð er fyrir því að fundir fiskimálanefndar FAO séu haldnir í heimaríkjum formennskuríkja. Fyrsti fundur undirnefndarinnar var haldinn rafrænt í janúar 2024 en fundurinn í Reykjavík er fyrsti staðfundur nefndarinnar. Fundurinn er haldinn með stuðningi stjórnvalda og samstarfsaðila.

Undirnefndin starfar undir fiskimálanefnd FAO, Committee on Fisheries, sem er einn mikilvægasti alþjóðlegi stefnumótunarvettvangurinn á sviði fiskveiða og fiskeldis. Hlutverk hennar er að fjalla um megináskoranir og bestu starfsvenjur í fiskveiðistjórnun, styðja við innleiðingu alþjóðlegra viðmiða og leiðbeininga og efla samræmda nálgun ríkja að sjálfbærri nýtingu lifandi auðlinda hafsins.

Deila: