Heiðursgestur á saltfiskkeppni á Ítalíu

Deila:

Guðmundur Árnason var heiðursgestur á saltfiskkeppni í Rimini á Ítalíu en um var að ræða samstarfsverkefni Baccalà Islandese og FIC, kokkasamtaka Ítalíu, þar sem íslenskur saltfiskur var kynntur. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Guðmundur er alinn upp við saltfiskverkun á Eskifirði og þekkir því vel til hefða og handverks á íslenskum saltfiski. Í stuttu ávarpi sínu benti hann á að nú væru rétt um 100 ár liðin frá því að Íslendingar hófu að selja saltfisk til Ítalíu.

Í fréttinni er einnig rifjað upp að fyrsti ræðismaður Íslands á Ítalíu var skipaður árið 1946, Hálfdán Bjarnason saltfiskkaupmaður í Genóa.

Sigurvegari keppninnar var Giovanni Mercante frá Vicenza. Hann hlýtur í verðlaun ferð til Íslands þar sem hann fær tækifæri til að heimsækja framleiðendur og kynnast íslenskri matarmenningu.

Deila: