Mikil frysting á Japansloðnu í Neskaupstað

Frysting á Japansloðnu hefur verið samfelld í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að undanförnu og hafa afköst verið mikil. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir að allt hafi gengið vel í vinnslunni.
Barði NK kom með 900 tonn á föstudag en aflinn fékkst í þremur köstum fyrir vestan Vestmannaeyjar. Að lokinni vinnslu úr Barða hófst löndun úr Beiti NK sem kom til Neskaupstaðar með 1.850 tonn.
„Við fengum aflann í fjórum köstum beint suður af Selvogsvita. Við vorum líklega 6-7 mílur suður af vitanum. Nú eru skipin komin enn vestar. Þessi loðna sem við komum við er glimrandi fín Japansloðna og það gengur afskaplega vel að vinna hana. Hrognafyllingin í fyrsta kastinu okkar reyndist vera um 19% en í síðasta kastinu var hún rúmlega 21%. Nú kemur Börkur á eftir okkur með rúm 1.500 tonn og líklega verður það síðasti farmurinn með Japansloðnu. Nú er nefnilega loðnan farin að losa pokann og það fer að koma að hrognavinnslunni. Menn eru mjög ánægðir með vertíðina og það ríkir gleði yfir því að fá að veiða með nót. Nótaveiði er það skemmtilegasta sem maður gerir,“ segir Tómas Kárason skipstjóri á Beiti NK í fréttinni.
Fram kemur að Börkur sé á leiðinni með rúm 1.500 tonn og að líklega verði það síðasti farmurinn með Japansloðnu að þessu sinni.
