Burðarþolsmat Mjóafjarðar á lokametrunum

Deila:

Laxeldisleyfi í Mjóafirði verða að líkindum boðin út á næstu mánuðum þegar Hafrannsóknastofnun hefur lokið við mat á burðarþoli fjarðarins. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Með lagabreytingu fyrir nokkrum árum var opnað á útboð eldisleyfa en áður gilti reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Áður en til útboðs kemur þarf þó að liggja fyrir mat á burðarþoli og mögulegum eldissvæðum.

Rakel Guðmundsdóttir líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun stýrir rannsóknunum og segir vinnuna ganga vel þar sem helstu grunnrannsóknir hafi þegar farið fram. Nú séu keyrð líkön sem herma eftir aðstæðum í firðinum, meðal annars straumum og afdrifum úrgangs frá eldi, sem nýtist við mat á staðsetningu eldis.

Mjóafirði hefur verið skipt upp í tvö vatnshlot þar sem straumar eru veikari innst í firðinum en sterkari utar. Því þykja svæði utar í firðinum líklegri til að henta betur fyrir eldi.

Mjófirðingar hafa lýst yfir stuðningi við laxeldi og fyrirtækið Kaldvík hefur áhuga á að bjóða í væntanleg eldissvæði. Að sögn Rakelar er markmiðið að burðarþolsmatið tryggi að eldið verði í sátt við vistkerfi og náttúru fjarðarins og að um sjálfbæran iðnað verði að ræða.

Deila: