Verðmætið nam 359 milljörðum 2025

Deila:

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam um 359 milljörðum króna á árinu 2025 og jókst um tæplega 4% frá fyrra ári. Þar sem krónan var að jafnaði sterkari nam aukningin rúmum 8% í erlendri mynt.

Botn- og flatfiskafurðir vógu þyngst og nam verðmæti þeirra rúmlega 253 milljörðum króna, sem er rúmlega 13% aukning á föstu gengi. Þorskur og ýsa skýra meginhluta hækkunarinnar. Verðmæti þorskafurða nam um 155 milljörðum króna og jókst um 13% þrátt fyrir að útflutt magn drægist saman. Verðmæti ýsuafurða nam tæplega 42 milljörðum króna og jókst um 27%, einnig samhliða samdrætti í magni.

Útflutningsverðmæti uppsjávarafurða nam rúmlega 89 milljörðum króna og stóð nánast í stað milli ára. Makríll skar sig úr með 47% aukningu á föstu gengi og loðna jókst um 28%, en verðmæti síldar og kolmunna dróst saman.

Samkvæmt samantektinni má rekja hækkun útflutningsverðmætis alfarið til hækkunar afurðaverðs sem hækkaði um 15% í erlendri mynt. Sú hækkun vó upp á móti 6% samdrætti í magni og áhrifum sterkari krónu.

Greinin byggist á frétt af mælaborði Radarsins.

Deila: