66 skip missa haffærið

Samgöngustofa hefur ógilt skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum sem einn þjónustuaðili framkvæmdi árið 2025 í kjölfar herts eftirlits stofnunarinnar. Ákvörðunin byggir á frávikum sem komu í ljós við nýlega úttekt. Í tilkynningu á vef Samgöngustofu kemur ekki fram hvaða fyrirtæki um ræðir – það virðist ekki koma málinu við.
Ógildingin nær til 87 gúmmíbjörgunarbáta á 66 skipum en tólf þeirra hafa verið á sjó að undanförnu. Samkvæmt skipalögum teljast skipin óhaffær þar til endurtekin skoðun á björgunarbátum þeirra hefur farið fram hjá viðurkenndum þjónustuaðila og staðfest að þeir uppfylli gildandi öryggiskröfur. Endurskoðun sem fram fer fyrir 1. maí 2026 verður útgerðum að kostnaðarlausu.
Útgerðir viðkomandi skipa hafa þegar verið upplýstar og fengið leiðbeiningar um næstu skref. Aðgerðirnar eru liður í áframhaldandi vinnu Samgöngustofu við að styrkja eftirlit og tryggja að björgunarbúnaður uppfylli ávallt kröfur um öryggi sjófarenda.
Frá síðasta hausti hefur eftirlit með skoðun gúmmíbjörgunarbáta verið hert. Samstarf við þjónustuaðila hefur verið þétt með föstum fundum, sérstakar leiðbeiningar hafa verið útbúnar, skoðunarhandbók uppfærð og sérfræðingur frá framleiðanda björgunarbátanna fenginn til liðsinnis við skoðanir á vettvangi. Þá er aukin upplýsingagjöf og fræðsla fyrir útgerðir í undirbúningi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samgöngustofu.
Myndin er úr safni.


