Bátur sökk við bryggju á Tálknafirði

Gamall þjónustubátur sökk í höfninni í Tálknafirði á morgun. Vísir greinir frá. Báturinn heitir Kópanes AK 375 og var smíðaður árið 1989. Skipafélag Gunnars er eigandi bátsins en hann var þar til nýlega í eigu Arctic Fish. Báturinn hefur ekki verið í notkun lengi.
Rétt fyrir hádegi mun báturinn hafa verið kominn á bólakaf. Orsakir eru óljósar en unnið er að því að meta hvernig best er að hífa hann upp.
